Þú ert hér

Sigþór Ólafsson

f.d. 18.01.1942 - d.d. 28.02.2010
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, bróðir og afi lést á heimili sínu þann 28. febrúar síðastliðinn.

Verður jarðsunginn frá Þorlákskirkju
laugardaginn 6.mars kl.14.00.

Guðrún Lilja Skúladóttir
Ólafur Helgi Sigþórsson, Sigþór Gunnar Sigþórsson, Anna Lea Björnsdóttir, Lára Bryndís Björnsdóttir, Guðný Kúld, Lilja Kúld, Þorsteinn Kúld, Þórður Ólafsson, Guðríður Ólafsdóttir og aðstandendur

Ólafur Ágúst Veturliðason

f.d. 01.08.1928 - d.d. 05.02.2010
Elskulegur Bróðir Okkar Ólafur Ágúst Veturliðason
Lést á Liknardeild Landakotspitala 5 feb sl.
Jarðaförin Fór fram Í Víðidalskirkju í Garðabæ Mánudaginn 15 feb að Viðstödum miklum Fjölmenni.

Systurnar Guðrún Veturliðadóttir
og Guðrún Jónsdóttir.

jósef halldór þorgeirsson

f.d. 16.07.1936 - d.d. 23.09.2008
elsku afi minn langaði bara að segja þér hvað ég elska þig mikið og sakna þín mjög mikið þú átt þinn stað í hjarta minu♥†






Skúli Ísleifsson

f.d. 10.08.1942 - d.d. 09.02.1999
Skúli Ísleifsson lést 9 Febrúar árið 1999. Þú munt alltaf eiga stóran stað í hjarta mínu. Hvíldu í friði elsku afi minn.
Elska þig.


Ljósið flæðir enn um ásýnd þína:
yfir þínum luktu hvörmum skína
sólir þær er sálu þinni frá
sínum geislum stráðu veginn á.

Myrkur dauðans megnar ekki að hylja
mannlund þína, tryggð og fórnarvilja
- eftir því sem hryggðin harðar slær
hjarta þitt er brjóstum okkar nær.

Innstu sveiflur óskastunda þinna
ennþá má í húsi þínu finna –
þangað mun hann sækja sálarró
sá er lengst að fegurð þeirra bjó.

Börnin sem þú blessun vafðir þinni
búa þér nú stað í vitund sinni:
alla sína ævi geyma þar
auðlegðina sem þeim gefin var.

Þú ert áfram líf af okkar lífi:
líkt og morgunblær um hugann svífi
ilmi og svölun andar minning hver
- athvarfið var stórt og bjart hjá þér.

Allir sem þér unnu þakkir gjalda.
Ástúð þinni handan blárra tjalda
opið standi ódauðleikans svið.
Andinn mikli gefi þér sinn frið.
J. (Jóhannes úr Kötlum)

Ólína Halldórsdóttir

f.d. 03.08.1918 - d.d. 02.12.2009
Elsku amma mín lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 2.desember. Hvíl í friði.
Þín Herdís.

Guðfinnur Sigurður Sigurðsson

f.d. 16.11.1940 - d.d. 18.11.2009
Guðfinnur. Sigurður Sigurðsson, lögregluvarðstjóri og forvarnarfulltrúi, er látinn, 69 ára að aldri. Guðfinnur fæddist í Reykjavík 16. nóvember 1940, sonur Helgu Kristínar Guðmundsdóttur og Sigurðar Sigurðssonar sjómanns.

Jóhönnu Olgu Zoéga Björnsdóttur Hjaltalín

f.d. 20.02.1957 - d.d. 20.11.2006
20.11.2009.

Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.

Nú eru liðin þrjú ár sem þú fórst frá okkur, við söknum þín öll mjög mikið.

GUÐ blessi þig og varðveiti...

Auður Ágústsdóttir

f.d. 28.04.1934 - d.d. 06.11.2009
Auður Ágústsdóttir fæddist á Aðalbóli Sandgerði 28.apríl 1934. Hún var gift Jóhannesi M. Lange og bjuggu þau frá árinu 1956 í Kópavogi. Þau eignuðust 6 börn.
Auður lést á krabbameinsdeild 11-E LSH að morgni 6. nóvember 2009

Sævar Már Ingimundarson

f.d. 21.01.1963 - d.d. 06.10.2009
fæddur í keflavík

elsku faðir minn lést að nóttu til í svefni út í þýskalandi þar sem hann bjó 5.-6.okt.2009

hann var búin að berjast við veikindi að sökum bílslys sem hann lennti í 2005.

hann var mikill tónlistarmaður og lætur eftir sig 2 dætur og eitt barnabarn.

hvíldu í friði elsku pabbi minn ;*

Sigurrós Einarsdóttir Grinderud

f.d. 20.03.1950 - d.d. 03.08.2009
Elsku besta móðir okkar lést þann 3 ágúst á heimili sínu í Noregi,hún lætur eftir sig eiginmann,5 uppkomin börn og barnabörn.Þín verður sárt saknað hvíldu í friði og guð verði með þér.

Hilmar Bjarnason

f.d. 23.08.1930 - d.d. 09.06.2009
Hann pabbi minn dó þriðjudaginn 9,júní s.l.
Ég sakna hans sárt og hugsa til hans á hverjum degi.
Guð veri með þér pabbi minn, hvar sem þú ert.

Einar Logi Einarsson

f.d. 08.03.1938 - d.d. 02.08.2002
Einar Logi Einarsson lést á Landspítalanum við Hringbraut, þann 2. ágúst 2002.

Ásta Pálína Baldvinsdóttir

f.d. 14.04.1935 - d.d. 14.12.2008
Ástkær mamma, amma,langamma og systir.Andaðist á FSA á Akureyri 14.12.2008.
Minning þín lifir sem ljósið bjarta.Hvíl í friði okkar ástkærust.

Valgeir Agnar Guðmundsson

f.d. 24.02.1970 - d.d. 09.07.1971
Valgeir Agnar Guðmundsson lést 9.júlí 1971

Árný Hildur Árnadóttir

f.d. 05.09.1975 - d.d. 26.02.2007
Elskuleg Dóttir, Systir, Mágkona og Frænka,
Árný Hildur Árnadóttir
Heiðarholti 8e.
Keflavík

Lést á Heimili sínu 26. febrúar 2007, útförin fór fram frá Kefavíkurkirjku 6. mars sama ár.

Málhildur Sigurbjörnsdóttir

f.d. 24.07.1935 - d.d. 29.11.2008
Elskuleg sambýliskona, móðir, teindamóðir, amma og langamma lést aðfaranótt 29.11.2008 á heimlinu sínu að Heiðarbrún.
Þín verður sárt saknað, minningin lifir.

Jónea Samsonardóttir

f.d. 11.10.1923 - d.d. 16.01.2009
Elskuleg móðir og stjúpmóðir okkar
Jónea Samsonardóttir
Háaleitisbraut 117
108 Reykjavík
Fædd 11.10.1923
Dáin 16.01.2009
Ljúf minning lifir

Elfa Fanndal Gísladóttir

f.d. 20.10.1946 - d.d. 04.02.2009
Eiginkona mín, móðir, amma og tengdamóðir, Elfa Fanndal Gísladóttir andaðist á Skógarbæ í Reykjavík þann 4. febrúar 2009.

Njáll Harðarson, Gísli Freyr Njálsson, Linda Ýr Njálsdóttir, tengdasonur og barnabörn.

Þórdís Hjaltalín Jónsdóttir

f.d. 28.07.1915 - d.d. 05.07.2008
þórdís hjaltalín jónsdóttir ( Dísa)fæddist í reykjavík 27 júlí 1915 og dáin 5 júlí 2000.

Hún var dóttir hjónana Ingibjargar Egilsdóttur ættuð frá Minna Mosfelli í Mosfellsbæ og Jóns hjaltalín Kristinssonar málarameistara ættaður í Reykjavík.
þau hjónin egnuðust 6 börn,2 yngstu börnin létust úr barnaveikinni,síðar eignuðust þau 4 börn,3 dætur,þær Guðrúnu,Gyðu og Þórdísi sem nú er látin,og soninn Hákon sem er látinn.

Þórdís giftist árið 1938 Sverri Guðmundssyni aðstoðaryfirlögreglumanni hann dó árið 1996 þau eiga eina dóttur Sjöfn, fædda árið 1949 hún á 3 börn,
þau Sverri Halldórsson f. 1971
Sigríði Halldórsdóttur f. 1972
og Ingimar Þór Theodórsson f. 1978,og 2 barnabörn þau Matthías Máni og Aníta Sól.

Þórdís og Sverrir bjuggu sín fyrstu hjúskaparár á Ásvallagötu 25 sem Jón faðir Dísu byggði árið 1956 fluttu þau hjónin að Kaplaskólsveg 37 enn árið 1997 eftir lát Sverris flutti Þórdís á Minni Grund við Sólvallagötuna síðustu árin var hún á hjúkrunardeild 3v á elliheimilinu Grund.



þann 5 júli sl,kvaddi elsku móðir mín þessa jarðvist enn hún fékk lungnabólgu 3 dögum áður og þá var vitað að hverju stefndi hún var á 93 aldursári sínu hún vildi fá að fara, líkaminn búinn enda var hún rúmlyggjandi orðin og átti erfitt með að sita í stól nema stutt enn mamma tók ellinni eins og hún kom fyrir og er pabbi dó árið 1996 eftir stutt veikindastríð þar var engin viðbúin þeim vátíðindum og mamma var ekki að ná sér eftir það stóra áfall enn hún var að vera svo dugleg og við fjöldskyldan héldum þétt utan um hana og eins það trygga og góða vinafólk sem þau bæði áttu hún fékk allan sinn tíma til að syrgja og smátt og smátt kom sá neisti að halda áfram að gera það sem var að vera hennar áhugamál og gleði að taka til hendi með vinkonum sínum í Húsmæðrafélaginu og heimsækja vinkonur og ættingjana og að bjóða vinahópnum heim eins og áður enda að njóta þess að dekka upp borð og hlaða á það gómsætum pönnukökum og brauðréttum og

það var oft gaman hjá okkur á þessum tímum í eldhúsinu og svo sátum við á kvöldin og horfðum á góðar myndir eða fórum út

að ganga og í bíltúra, enn þegar hún varð fyrir þvi að detta heima hjá sér og brákaðist á hendi að hún ákvað að sækja um

á elliheimili þvi hún var farin að vera svimagjörn og er hún fékk svar að hún gæti fengið herbergi á Minni Grund sem hún

var að þekkja vel enda í næstu götu við hennar gömlu heimaslóðir

Asvallagötu 25 ,og hún var svo glöð að komast þangað og hún var að njóta sín svo vel á Minni Grund ,lítið eldhús á

hæðinni og það mikið notað ,hún að geta boðið til sín gestum og setið og tekið í spil með heimafólkinu gott starfsfólk og

góður matur og oft hringdi hún og bauð mér í mat eða kaffi með sér í notalega matsalnum,enn svo varð hún fyrir þvi að

detta og brotna og fór þvi tímabundið inn á Grund á hjúkrunardeildinna þar sem hún var um tíma til að láta sár sín gróa er hún lærbrotnaði illa ,enn með frábærri umönnun þá náði hún sér nokkuð vel,fékk göngugrind og dugleg að komast um enn sviminn slæmur og hún var tilbúin að fara inn á hjúkrunardeildinna sem hún hafði legið í lærbroti sínu,og sótti eftir að komast þangað aftur, og þar bjó hún í sérherbergi og undi hag sínum vel ,elskulegt starfsfólk sem hún átti orðið hvert bein í og oft að það settist hjá henni til að spjalla þvi að mamma var vel gefnin kona og sagði svo skemmtilega frá enda með gott minni og frábært sem aldrei var tekið frá henni ,og þegar hún var orðin rúmliggjandi að hún naut þess að lesa bækur, blöð og tímarit hún var góð tungumálamanneskja , las sænsku ,dönsku og norsku blöðin og sagði mér oft fréttir úr þeim blöðum af fólki og málefnum enda höfðu þau hjónin búið í Svíþjóð um tíma á þeirra yngri árum þar sem pabbi var þar í lögregluskóla og hún fljót að komast allar sínar ferðir og að kynnast fólkinu þarna og naut dvalarinnar að vera húsmóðir í þvi landi,enn svo skall stíðið á í Evrópu og hún varð að fara á unda pabba heim og sú heimferð var nokkuð frábrugðin að þvi leiti að hún flaug með flugbáti sem minnti enn frekar á að stríðið væri að koma, þvi að vistin var köld á leiðinni enda engin hiti í vélinni,og hún þurfti ekki að bíða lengi eftir sínum manni sem kom stuttu síðar útskrifaður

Þau bjuggu í húsi þvi sem foreldrar hennar áttu ásamt einni systur sinni og bróður og amma bjó í risinu,og svo þegar

börnin fæddust hvert af öðru og húsið að óma af börnum og þegar vel viðraði þá var setið út í garði og drukkið kaffi og

oft gestkvæmt þar,mamma að minnast oft að þá tíma og margar myndir voru teknar við þau tækifæri .Mamma var að hafa

fallega söngrödd og naut þess að syngja í góðra vina hóp,og hún naut þess að syngja úr vísnabókinni fyrir mig og oft var

ég að vera nokkuð ágeng við hana í beiðni minni að hún syngdi fyrir mig allar vísurnar úr þeirri bók, enn hún kunni ráð

sem dugði og sagði oft ,nú verð ég að hætta ,ég þarf að elda mat handa honum pabba þínum,það virkaði vel, enn stundum

var hún elt inni í eldhús og beðin um að flauta lag eða herma eftir kanarífuglum sem hún gerði listavel og oft sátum við

krakkarnir í eldhúsinu hjá henni á þeim stundum og pönntuðum hin og þessi fuglablístur,og alltaf var mamma tilbúin til

þess og margra fallegra minninga eru að vera af mömmu sem prjónaði ,heklaði og saumaði á mig og þegar barnabörnin komu þá

kom hver flíkin á eftir annari á þau ,og svo heklaði hún jóla og páskaskraut sem hún gaf mikið af og að skreyta heimilið

með, allt svo vandað og vel unnið og hún var iðin við að kenna mér og oft sátum við og hekluðum allt mögulegt til að

príða heimilin,hún bróderaði í handklæðin kodda og sængurverin og lék sér að alskonar saumsporum ,kvöldin notuð og nýtt

vel setið í borðstofuhorninu ,hún með handvinnuna og pabbi að horfa á sjónvarpið ,og þeirra áhugamál að njóta útiverunar

, að spila golf og fara í sund á hverjum morgni kl.7 í vesturbæjarlaugina,þar var einn vinahópurinn að vera samankominn í

heita pottinum og úr varð sundklúbburinn góði( Old spice) og þó að þau væru hætt að vinna þá mættu þau alltaf á sama

tíma í sundið ,og það var svo ánægjulegt á sjá hve vel þau voru að nýta sín ár og mamma var að vera svo þakklát hve lífið

hefði verið henni gott,enda að vera trúuð kona og mikil bænakona þvi foreldrar hennar ræktuðu bænirnar og trúnna og er

Ingibjörg amma varð ekkja með 4 ung börn að ala önn fyrir en afi jón dó árið 1933 ,Ingibjörg amma var ötul að kenna

börnum sínum Guðsorðið og bænir og sálma og mamma að gefa mér þetta allt og ég var ekki gömul er ég sótti bæði kirkju og

KFUM barnastarfið og að eiga góðar minnar af þeim stundum,og áfram að miðla til minna barna það sem mér var gefið og

kennt og þau eins að njóta þess sem þeim var gefið og miðlað og það fræ sem sáð var til er sem fjölær jurt sem hefur

fastar rætur sem aldrei skortir vatn,og þegar litið er yfir ævi foreldra minna þá sést vel að allar óskir þeirra gengu

eftir og í mildi og í kærleika að þau voru að geta notið lífsins og elliárana heil heilsu þetta lengi ,og þau að þakka

þessi mörgu ár sín sem engin er að vita hvenær kallið kemur, og þá að taka á móti slíku ,ekki sem mótlæti heldur þvi að

allt tekur endi og móðir mín var tilbúin þegar kallið kæmi og henni varð að ósk sinni að þurfa ekki að bíða í þjáningum

lengi,og við vorum öll að geta kvatt hana og daginn eftir sofnaði hún búin að fá að lifa að fylgjast með barnabörnum vaxa

og dafna og að sjá og njóta langömmubarns sem kom í hennar faðm 5 daga gamall sem hún kallaði litla engilinn sinn,hún að

lifa að vitna brúðkaup dótturdóttur sinnar í fyrra, enn þær voru að vera miklar vinkonur og nánar og að kynnast

væntalegum eiginmanni hennar og naut þess að fá litlu fjöldskyldunna sína eins oft og hægt var og passaði upp á að vera

alltaf í fínna dressinu sínu,og slæður í stíl við,og þegar litið er yfir veg móður minnar þá er sá vegur allur að vera

einn kærleikur gulli stráður í hverju hennar spori,og við að sakna hennar , erum einnig að gleðjast að hafa átt ástríka

og hugljúfa móður og ömmu, enn lífið heldur áfram með öllum .þeim fjölda minninga sem varðveitast um ókomin ár,Blessuð

sé minning móður minnar og föður míns .Okkar innilega þakklæti til vinafólks, ættingja og alls starfsfólks á

hjúkrunardeild 3 V á Grund fyrir góða umönnun og kærleika .Drottinn blessi ykkur öll.


Þín dóttir Sjöfn.


Engla þína leiða mig lát

í þjáninga heimi,

uns endar stríð.

Í himin þinn þeir leiði mig þá

þar sem hvorki er synd né dauði.

Óli Björgvinsson

f.d. 16.04.1942 - d.d. 22.12.2005
Óli Björgvinsson lést á heimili sínu 22. desember 2005. Útför hans fór fram frá Djúpavogskirkju 28 desember 2005.

Ólöf Óskarsdóttir

f.d. 26.05.1945 - d.d. 02.01.2004
Ólöf Óskarsdóttir lést á Landspítalanum 2. janúar 2004. Útför hennar fór fram frá Djúpavogskirkju.

Sæmundur Jóhannsson

f.d. 04.11.1924 - d.d. 12.01.2008
Sæmundur Jóhannsson fæddist á Skriðulandi í Arnarneshreppi 4. nóvember 1924. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 12. janúar 2008. Hann var sonur Ástríðar Sæmundsdóttur frá Kleif í Þorvaldsdal og Jóhanns Sigvaldasonar frá Rauðalæk í Hörgárdal. Sæmundur var næstelstur í stórum systkinahópi en hin voru Bára, f. 1921, d. 1996, Gunnar, f. 1926, d. 1987, Sigrún, f. 1928, Baldvin Helgi, f. 1931, d. 1944, Þóroddur Ingvar, f. 1932, d. 1989, Aðalsteinn Björgvin, f. 1934, tvíburarnir Áslaug og Snjólaug, f. 1938 og Bryndís, f. 1942. Sæmundur fór snemma í vegavinnu og gat þannig aðstoðað foreldra sína við framfærslu heimilisins. Hann lauk múraranámi og byggði m.a. stórt steinhús að Ytri Reistará fyrir foreldra sína og systkini. Húsið stendur enn í dag. Sæmundur flutti suður til Reykjavíkur og lauk múrarameistaranámi 1953.

Sæmundur kvæntist Margréti Kristjánsdóttur frá Siglufirði í mars 1957 en hún er dóttir hjónanna Kristjáns B. Kjartanssonar útgerðarmanns og Ólínu Kristjánsdóttur húsfreyju. Sæmundur og Margrét slitu samvistum 1985. Saman eignuðust þau 3 börn. Þau eru:

Kjartan, húsasmíðameistari og grunnskólakennari á Ólafsvík, f. 5.7.1957. Hann á frá fyrra hjónabandi dótturina Lilju Björk, sambýlismaður Jón Aðalsteinn Kristjánsson, þau eiga 2 syni, Danival Ísak og Dag Aron. Kjartan er kvæntur Ekaterynu Siparenko og á hún eina dóttur, Anastasiyu.

Ásta Kristín Sæmundsdóttir Norrman, f. 3.2. 1959, hjúkrunarfræðingur í Svíþjóð, gift Lars Tommie Norrman frá Svíþjóð og eiga þau dæturnar Christinu, Söndru og Ylvu.

Guðrún, húsmóðir í Hafnarfirði, f. 23.7.1962, gift Kjartani Birgissyni frá Reykjavík, þau eiga 2 börn, Margréti og Kjartan Helga.

Sæmundur var mikill athafnamaður. Hann vann að mestu við sína iðn, en fór á sjóinn bæði sem háseti og kokkur þegar minna var að gera í múrverki. Hann var mikils metinn fagmaður og vann við iðn sína fram á síðustu daga. Hann hafði mikinn áhuga á líkamsrækt, stundaði sund daglega og var fastur gestur á líkamsræktarstöðinni. Hann var líka mikill göngugarpur og fór oft í göngur með Útivist. Hann var fróður maður og hætti aldrei að læra. Fór meðal annars í tölvuskóla þegar hann var kominn yfir áttrætt. Hann var góður bridsspilari og keppnismaður í þeirri íþrótt. Líkt og frændi hans Jónas Hallgrímsson var Sæmundur einstakur náttúruunnandi og málleysingjar voru honum kærir.

Guðgeir Sumarliðason

f.d. 02.04.1929 - d.d. 19.10.2008
Guðgeir Sumarliðason

Kristján Hauksson

f.d. 14.01.1963 - d.d. 15.03.1998
Kristján Hauksson er látinn.

Indiana Sigfúsdóttir

f.d. 16.06.1927 - d.d. 18.10.2008
Indíana Sigfúsdóttir dó þann 18.október 2008 og fór útför fram laugardaginn 25. október 2008 kl. 14:00 í Undirfellskirkju.

Sveinn Ólafsson

f.d. 16.04.1936 - d.d. 07.01.1967
Faðir minn lést í janúar 1967.

Jórunn Hadda Egilsdóttir

f.d. 11.04.1935 - d.d. 12.08.2008

Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,


Jórunn Hadda Egilsdóttir

Linnetsstíg 2,

Hafnarfirði,

 

lést á líknardeild LSH í Kópavogi, þriðjudaginn 12. ágúst 2008.

Útförin fór fram í Hafnarfjarðarkirkju, 22. ágúst 2008.

 

Ingiberg Þ. Halldórsson

Katrín Ingibergsdóttir                  Jóhann A. Guðmundsson

Bergþór Ingibergsson                  Sirivan Khongjamroen

Egill Ingibergsson                        Anna María Sveinbjörnsdóttir

Guðbjörg Ingibergsdóttir            Ólafur Haukdal Bergsson

Halldór Ingibergsson

barnabörn og barnabarnabörn.

Páll Jóhann Einarsson

f.d. 22.01.1937 - d.d. 02.08.2008
Elskulegur faðir okkar og bróðir
Páll Jóhann Einarsson
flugmaður

andaðist aðfaranótt laugardagsins 2. ágúst sl. á líknardeild Landakots.
Útför hans verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 12. ágúst n.k. kl. 15:00.    Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á PEACE útáfuna s: 893 3361. Kt. 2001373419. Banki:  0513  26  077770.

Carolin Einarsson Pálsdóttir    Kristín Einarsson Pálsdóttir
Birgir Davidsen Pálsson
Páll Ástþór Jónsson Pálsson
Stefán (Norman) Mink Pálsson
Systkini og afkomendur.

Aðalbjörg Kristjánsdóttir

f.d. 26.11.1945 - d.d. 03.08.2008
Aðalbjörg Kristjánsdóttir, Stapaseli 15,Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 3. ágúst

Kristján Óskarsson

f.d. 08.02.1927 - d.d. 12.06.2008
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Kristján Óskarsson Steinhólum, Eyjafjarðarsveit lést fimmtudaginn 12. júní á hjúkrunarheimilinu  Hlíð. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug, sérstakar þakkir til starfsfólks Hlíðar fyrir góða umönnun.

Valberg Kristjánsson - Steinunn Einarsdóttir
Óskar Kristjánsson - Maria Tryggvadóttir
Hermann Kristjánsson
Njáll Kristjánsson - Anna Reykdal
Kristjana Kristjánsdóttir - Atli Steinbergsson
barnabörn og barnabarnabörn.

Þorbjörg Jónsdóttir

f.d. 16.08.1928 - d.d. 21.06.2008
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona, amma og langamma Þorbjörg Jónsdóttir Strikinu 4 lést að Landsspítalanum í Fossvogi laugardaginn 21.júní.
Ingólfur Kristjánsson, Ólafía Einarsdóttir, Jón Egill Kristjánsson, Rita Moi, Sigurður Kristjánsson, Ingibjörg Bírna Ólafsdóttir, Baldur Jónsson, Guðrún Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.
 

Hjálmar Jón Hjálmarsson

f.d. 28.03.1925 - d.d. 09.06.2008
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Hjálmar Jón Hjálmarsson
 Háteigi Húsavík
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga mánudaginn 9. júní. 
Útför hans fer fram frá Húsavíkurkirkju mánudaginn 16. júní kl. 14.00.
Sólveig Pétursdóttir
 börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

Jón Bjarni Þórðarson

f.d. 19.02.1932 - d.d. 25.05.2008
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi
Jón Bjarni Þórðarson
Kaupmaður
Kirkjusandi  5, Reykjavík
Lést á krabbameinsdeild Landspítalans að kvöldi sunnudagsins 25 maí.
Útför hans fer fram frá Bústaðarkirkju þriðjudaginn 3.júní  kl.13:00
Áslaug Bernhöft
Þórður Jónsson
Ólafur Þór Jónsson,  Þórey Björk Þorsteinsdóttir
og barnabörn

Sesselja Kristjana Guðbjartsdóttir

f.d. 31.05.1935 - d.d. 16.05.2008
Ástkær eiginkona mín, móðir,tengdamóðir,amma, langamma og langalangamma Sesselja Kristjana Guðbjartsdóttir Hátúni 4 Reykjavík lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 16 maí.
Hreinn Ófeigsson
Pétur Hreinsson   Sigríður María Jóhannesdóttir
Elínborg Hreinsdóttir   Magnús Jónsson
Hreinn Sesar Hreinsson   Lára Aðalsteinsdóttir
Elfa Björt Hreinsdóttir  Emil Gústafsson
Gunnhildur Hreinsdóttir  Bjarni Benediktsson
Ófeigur Hreinsson  Lilja Dögg Gylfadóttir
barnabörn, barnabarnabörn,og barnabarnabarnabarn.

Bergþóra Skagfjörð Stefánsdóttir

f.d. 11.04.1928 - d.d. 01.05.2008

Elskuleg móðir okkar tengdamóðir, amma og langamma  
Bergþóra Skagfjörð Stefánsdóttir,  Asparfelli 8
Reykjavík   lést á Vífilsstöðum  1. maí 2008  
Þorsteinn Sigurjónsson
Jónbjörg Sigurjónsdóttir   Eiður H. Eiðsson
Njáll Harðarson   Elfa Fanndal Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn

Albert Jónasson

f.d. 01.11.1915 - d.d. 07.01.2007



 

Ásgrímur Einarsson

f.d. 18.02.1953 - d.d. 09.03.2008
Ástkær eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir og afi lést á heimili sínu þann 9. mars síðastliðinn.
Útför verður þann 19. mars frá Garðarholtskirkju.

Ísól Karlsdóttir

f.d. 17.08.1917 - d.d. 02.02.2001

til þín amma mín
þetta var ein besta langaamma sem að hægt var að eiga ..
hún gat alltaf kætt mann þegar að eitthvað var að og henni fannst vooðalega gaman að segja manni sögur .. hún bjó til nokkar bæækur í gegnum árin
og ég veit ekki hvernig ég á að lýsa henni .. bara einfaldlega frábær kona ;*

ég elska þig amma mín ;*
núna og að eilífu ;*

- Fanney Unnur. (L)

Gunnar Leó Leosson

f.d. 05.07.1978 - d.d. 20.06.2007
Látinn er málfræðingurinn og tónlistarmaðurinn Gunnar Leó Leosson.

Hjálmar Vagn Hafsteinsson

f.d. 25.04.1971 - d.d. 09.07.2005
Elskulegur sonur okkar, bróðir og frændi varð bráðkvaddur að morgni laugardagsins 9.júlí 2005

Guðríður Bjarney Ágústsdóttir

f.d. 26.12.1961 - d.d. 05.01.2008
Hún Gudda okkar varð bráðkvödd 5 janúar 2008. 

Lilja Sigurðardóttir

f.d. 01.05.1915 - d.d. 06.11.2007
Lilja Sigurðardóttir lést á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi 6. nóvember 2007

Erlendur Lárusson

f.d. 01.07.1934 - d.d. 03.10.2005
Elskulegur maki minn Erlendur Lárusson lést að heimili okkar 
mánudaginn 3.október 2005, eftir aðeins 6 mánaða baráttu við krabbamein sem bar brátt að og atti harða, óvægna baráttu í okkar lífi.
Ég vil minnast hans hér með söknuði og virðingu sem við bæði einsettum okkur í lífinu að hafa að eiga að leiðarljósi í hjónabandi okkar, virðing, vinátta og væntumþykja voru aðaleinkunnarorð okkar.
Ég sakna hans afar sárt einstaklega þessa dagana þegar hátíð ljós og friðar er rétt afstaðin og nýtt ár er gengið í garð. Það eru stundirnar sem mikið reyna á tilfinningalífið.
Elskulegur Erlendur minn, þakklæti mitt og kærleikur eru mín einkunnarorð í minningu þinni. Þakka þér fyrir allar okkar ljúfu, fallegu, átakalausu stundir þau ár sem við áttum saman elsku vinur minn.
Minning þín er hvatning mín um að lífið sé dýrmætara en allt annað.
Þakka þér hjartablóm fyrir að vera þú og lofa mér að deila tilverunni í návist þinni.
Sofðu vel elsku vinur minn
Þín elskandi Anna

Júlíana Kristín Pálsdóttir

f.d. 30.05.1942 - d.d. 30.12.2007
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Júlíana Kristín Pálsdóttir lést sunnudaginn 30. desember. Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 8. janúar kl. 13:00.  Sr. Gunnþór Ingason jarðsyngur

Páll Brynjólfsson, Margaret Brynjólfsson,
Gunnar Sigfússon, Inga Lára Karlsdóttir
Jón Gunnarsson
Borgar Gunnarsson
Sóley Gunnarsdóttir, Jón Briem Steindórsson

Barnabörn og langömmubarn

Ólafur Þorsteinsson

f.d. 12.02.1935 - d.d. 07.03.2001
Elsku pabbi minn sem lést árið 2001 
hann  var besti pabbi í heimi hann gerði allt fyrir mig og ég á honum mikið þakkað   
takk fyrir mig 
Elsku pabbi minn 
þín Brynhildur

Svavar Kr. Kristjánsson

f.d. 29.07.1913 - d.d. 16.10.1978
Svavar K. Kristjánsson veitingamaður lést á Landsspítalanum 16. okt. 1978

Ásta M. Hartmannsdóttir

f.d. 23.04.1933 - d.d. 24.12.2007
Ásta M. Hartmannsdóttir lést á Landsspítalanum að morgni 24. desembers.

Bragi Jónsson
Lilja Bragadóttir
Hartmann Bragason
Örn Bragason
Ásdís Bragadóttir
Sigþór Hákonarson
barnabörn og barnabarnabörn

Adam Smári Halldórsson

f.d. 04.11.1950 - d.d. 27.11.2003
Elsku faðir minn lést 27 nóvember 2003,hann var aðeins 53 ára þegar hann lést.Hann lét eftir sig 2 börn og 3 barnabörn en síðan hefur 4 barnabarnið bæst við.

Rafn Einarsson

f.d. 11.01.1956 - d.d. 05.11.2007
Rafn Einarsson lést í vinnuslysi í Svíðþjóð 5. nóv 2007
Hann var jarðsettur í Leksand 16. nóv 2007
Minngarathöfn fór fram í Grensáskirkju 5. des 2007

Kristjón Tromberg

f.d. 12.10.1922 - d.d. 24.11.1969

Kristjón Tromberg lést 24.11.1969.



Undirvalmynd

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is