Ólafur Ágúst Veturliðason
f.d. 1.8.1928 - d.d. 5.2.2010
Ólafur Ágúst Veturliðason fæddist 1. ágúst 1928 í Vatnadal í Súgandafirði. Hann lést á Landakoti 5. febrúar sl. Foreldrar hans voru Veturliði Híram Guðnason, f. 6.5. 1886, d. 27.12. 1956 bóndi í Vatnadal í Súgandafirði og Andrea Guðmundsdóttir, f. 29.9. 1891, d. 6.10. 1955, húsmóðir í Vatnadal. Systkini Ólafs: Guðmundur Andrés f. 19.11. 1914, d. 14.4. 1959. Guðni Egill f. 21.2. 1916, d. 6.4. 1916. Helga Guðríður f. 13.8. 1917, d. 7.1. 1993. Guðrún f. 31.5. 1921. Þórdís Sigríður f. 17.7. 1926, d. 29.3. 1927. Fóstursystir Guðrún Jónsdóttir f. 4.10. 1931. Ólafur kvæntist 15.7. 1961 eftirlifandi konu sinni Kristínu Sveinbjörgu Guðmundsdóttur, f. 14.9. 1941. Foreldrar hennar voru Guðrún Sigurðardóttir, húsfreyja á Ísafirði og síðar kaupkona í Hafnarfirði f. 1907, d. 1989 og Guðmundur Ingigeir Sveinsson, skrifstofumaður á Ísafirði og síðar kaupfélagsstjóri í Hafnarfirði f. 1905, d. 1947. Börn þeirra: 1) Andrea f. 1960 búsett í Hafnarfirði. Maki Erlendur Gunnar Gunnarsson f. 1955. Börn þeirra: a) Selma Kristín f. 1977, maki Símon Jón Jóhannsson f. 1957, börn þeirra eru Salka María f. 2001 og Sara Björt f. 2004. b) Gunnar f. 1983, sambýliskona Karítas Pétursdóttir f. 1983. 2) Guðrún f. 1961, búsett á Álftanesi. Fyrrverandi sambýlismaður Skúli Gunnarsson f. 1961. Þau slitu samvistum. Börn þeirra: a) Ólafur Dagur f. 1989, sambýliskona Guðrún Æsa Ingólfsdóttir f. 1991. b) Bergrós f. 1995. 3) Ármann f. 1964 búsettur á Álftanesi. Maki Árdís Olga f. 1964. Börn þeirra: a) Sigurður Reynir f. 1988 b) Laufey Rut f. 1992. 4) Helga f. 1969, búsett í Hafnarfirði. Maki 1 Ágúst Helgason f. 1967, þau skildu. Börn þeirra a) Alma Hrönn f. 1989, sambýlismaður Egill Örn Rafnsson f. 1982. b) Atli Sævar f. 1992. Maki 2 Bergur Helgason f. 1965, sonur hans Heiðar f. 1995. Dóttir Helgu og Bergs er Kristín Inga f. 2000. 5) Ágúst f. 1972, sambýliskona Rebekka Rut S. Carlsson f. 1976. Synir þeirra a) Róbert Híram f. 2002. b) Benedikt Híram f. 2009. Ólafur fæddist í Vatnadal í Súgandafirði og var æskuheimili hans þar til 20 ára aldurs. Þá fluttist hann með foreldrum sínum til Suðureyrar. Síðan fluttist Ólafur til Ísafjarðar og stundaði nám við Iðnskóla Ísafjarðar og lauk þar námi í múraraiðn 1961. Ólafur og Kristín hófu búskap á Ísafirði en fluttu til Hafnarfjarðar 1962. Bjuggu þau þar til ársins 1997 er þau fluttu á Álftanes. Ólafur vann ætíð við iðn sína, var meðal annars við múrvinnu í 7 ár í Borgarsjúkrahúsinu en lengst af vann Ólafur við flokkstjórn yfir múrurum í kersmiðju hjá ÍSAL í Straumsvík. Ólafur var í Múrarafélagi Reykjavíkur og gegndi þar mörgum trúnaðarstörfum.