Þú ert hér

Fá sendar tilkynningar Loka

Með því að skrá netfang þitt hér getur þú fengið sendar á tölvupósti nýjustu greinar og kveðjur þegar þær eru skráðar á viðkomandi.

Jóhann Magnús Gunnarsson

f.d. 28.4.1949 - d.d. 9.5.1997
Foreldrar hans voru þau Magnús Gunnar Magnússon lögregluvarðstjóri í Reykjavík, f. 11. janúar 1920, d. 1. ágúst 1986, og Kristín Guðlaug Bárðardóttir, f. 21. desember 1921.
Systkini Jóhanns eru Símon, f. 9. febrúar 1944, í sambúð með Eygló Andrésdóttur, Jóna, f. 21. ágúst 1946, gift Jóni Friðrikssyni, Matthías, f. 8. júlí 1950, í sambúð með Katrínu Eiríksdóttur, Dagný, f. 27. október 1962, í sambúð með Halldóri Diego Guðbergssyni.

Jóhann lauk gagnfræðaprófi frá Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi, en hóf síðar nám í glerslípun og speglagerð við Iðnskólann í Reykjavík. Öðlaðist hann meistararéttindi 20. ágúst 1990. Jóhann starfaði lengst af hjá Glerslípun og speglagerð Ludvigs Storr við Klapparstíg. Síðustu árin starfaði hann við Glerslípun og speglagerð hf. Skeifunni 5.

Jóhann kvæntist ekki og var barnlaus. Hann bjó í foreldrahúsum og eftir að faðir hans lézt, hélt hann heimili ásamt móður sinni.

Dánartilkynning Lesa grein

Jóhann Magnús Gunnarsson fæddist í Melshúsum, Seltjarnarnesi 28. apríl 1949. Hann lézt á Landspítalanum þann 9. maí 1997.

Útför Jóhanns fór fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. maí 1997 og hófst athöfnin klukkan 13.30.

Jarðarfaratilkynning Lesa grein

Ástkær sonur minn, bróðir okkar, mágur og
frændi,
JÓHANN MAGNÚS GUNNARSSON
glerslípari og speglagerðarmaður,
Stífluseli 8,

verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. maí kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þem, sem vilja minnast hans, er bent á
Krabbameinsfélag Islands.

Kristín Bárðardóttir,
Simon Gunnarsson, Eygló Andrésdóttir,
Jóna Gunnarsdóttir, Jón Friðriksson,
Matthías Gunnarsson, Katrín Eiríksdóttir,
Dagný Gunnarsdóttir, Halldór Guðbergsson,
Kristín Gunný Jónsdóttir,
Gunnar Magnús Halldórsson.

Minningarorð Lesa grein

Elskulegur bróðir okkar er látinn
langt um aldur fram eftir erfiða en
stutta baráttu við illvígan sjúkdóm.
Jóhann ólst upp ásamt okkur systkinunum yið sjávarsíðuna á Seltjarnarnesi. Á þeim árum var nesið ekki
eins þéttbyggt og í dag. Margs er
að minnast þegar litið er til baka,
t.d. þegar kýrnar í Nesi voru reknar í túnið heima á hverjum morgni
og hvað okkur þótti gaman að ærslast í þeim eða fara niður í fjöru eða
út á bryggju að veiða, ufsa eða
kola. Þá má ekki gleyma Gróttu
og öllum ævintýrunum sem við
upplifðum þar. Það var mikið líf í
okkur krökkunum á þessum árum.
Við vorum ekki há í loftinu þegar
við tókum þát í að breiða fisk á
fiskreiti og unnum ýmsa aðra vinnu
sem til féll. Alltaf höfðum við nóg
fyrir stafni á þessu yndislega Nesi,
með þessa ósnortnu náttúrufegurð.
Jóhann hafði mikinn áhuga á
íþróttum, einkum knattspyrnu, og
lék með KR í mörg ár og þótti
hann mjög efnilegur. Þótt Jóhann
hefði h æ tt að leika knattspyrnu
fylgdist hann mjög vel með hvað
var að geast í íþróttaheiminum
hverju sinni.
Jóhann bróðir var dulur að eðlisfari og bar ekki tilfinningar sínar
á torg en tryggur sínum nánustu.
Elsku bróðir, við kveðjum þig með
söknuð í hjarta og vitum að þjáningum þínum er lokið.

Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð.S.Egilsson).

Hafðu þökk fyrir allt.
Systkinin.



Elsku Jóhann frændi, það var
sárt að missa þig. Þú komst fram
við mig eins og faðir. Þú lést eins
og þú ættir tvö börn, mig og Evu
Rún. Þér fannst alltaf gaman að
knattspyrnu og þú hélst með KR
eins og ég. En þú varst allt í einu
veikur og þá vissi ég ekki að þetta
væri krabbamein. Svo sagði
mamma mér það. Þegar ég kom á
spítalann til þín sagði ég að ég
ætlaði að koma aftur, en mamma
og pabbi bönnuðu mér það. Mamma
sagði daginn eftir að ég gæti komið og heimsótt þig og fært þér blóm
en það varð aldrei neitt úr því.
Mamma sagði mér um kvöldið, þegar hún var komin heim af spítalanum að þú værir dáinn. Ég grét í
fanginu á mömmu minni en vissi
alla vega að þú værir kominn til
Guðs. Ef þú værir hjá okkur ennþá,
mundum við tefla skák eða spila
olsen olsen, sem okkur fannst svo
skemmtilegt. Þú áttir afmæli rétt
áður en þú lést og ég náði ekki að
gefa þér neitt, en þess i stað set
ég blóm á kistuna þína.
Á spítalanum leið þér illa og
þú varst alltaf
að missa meðvitund. Maður hélt að
þú værir dáinn, þegar þú andaðir
ekki í langan tíma. Þú varst svo
góður við mig og alla. Oft sagðir
þú mér sögur og fleira. Ég hélt að
þú kæmist í 11 ára afmælið mitt í
júlí en ég veit að þú fylgist með
mér áfram. Nú veit ég að þér er
batnað og pabbi þinn, ömmur og
afar taka örugglega vel á móti þér.

Andi trúar, andi vonar
andi Jesú Krists, Guðs sonar,
andi dýrrar elsku hans,
lát þú sannleiks ijósið bjarta
lýsa skært í mínu hjarta
fyll það krafti kærleikans.
(V. Briem).

Vertu sæll, besti frændi í heimi.
Þinn frændi
Gunnar Magnús.



Elsku frændi minn. Nú langar
mig að kveðja þig með nokkrum
orðum. Ég ólst meira og minna upp
á þínu heimili fram yfir unglingsárin. Þú varst svo barngóður og góður við mig. Mér eru minnisstæðastar samræður okkar en þá var ég
komin á unglingsárin og þú varst
að leiðbeina mér þegar ég var að
fara út að skemmta mér. Þá vildir
þú vita hvert ég væri að fara og
með hverjum og hvernig ég kæmist
heim að loknu balli. Mér þykir vænt
um þessar minningar, því við gátum
talað um allt á milli himins og jarðar.
Seinna er ég eignaðist mitt
fyrsta barn, sem er stúlka, varstu
svo góður við hana enda var hún
mjög hænd að þér.
Þú barðist hetjulega við þinn
sjúkdóm og varst duglegur í alla
staði, jákvæður og finnst mér þú
hafa tekið á þessum veikindum með
æðruleysi og kjarki, elsku Jói, og
finnst mér æðruleysisbænin eiga
vel við þig.

Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við
það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta
því sem ég get breytt og vit til að greina
þar á milli.
(Æðruleysisbænin)

Nú kveð ég þig, elsku frændi
minn, með vissu í hjarta mínu að
það verði tekið vel á móti þér.
Elsku amma, mamma, Dagný,
Mansi, Simmi og Gunnar Magnús,
Guð gefi ykkur styrk í þessari miklu
sorg.
Kristín Gunný Jónsdóttir og
Eva Rún Sigurðardóttir.
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is