Þú ert hér

Fá sendar tilkynningar Loka

Með því að skrá netfang þitt hér getur þú fengið sendar á tölvupósti nýjustu greinar og kveðjur þegar þær eru skráðar á viðkomandi.

Magnús Gunnar Magnússon

f.d. 11.1.1920 - d.d. 1.8.1986
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS GUNNAR MAGNÚSSON
aðalvarðstjóri,
Seljabraut 42,

verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 1 1. ágúst kl. 10.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir sem vilja minnast hins látna láti Krabbameinsfélag íslands njóta þess.

Kristfn Bárðardóttir
börn, tengdabörn og barnabörn.

Dánartilkynning Lesa grein

Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS GUNNAR MAGNÚSSON
aðalvarðstjóri,
Seljabraut 42,

verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 1 1. ágúst kl. 10.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir sem vilja minnast hins látna láti Krabbameinsfélag íslands njóta þess.

Kristfn Bárðardóttir
börn, tengdabörn og barnabörn.

Minningarorð Lesa grein

MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGUST 1986

Hinn 1.ágúst sl. lést Magnús Gunnar Magnússon aðalvarðstjóri ílögreglunni í Reykjavík.
Hann hafði átt við mikla vanheilsu að stríða sl.
tvö ár.
Kynni okkar Magnúsar hófust
er ég hóf störf í lögreglunni í Reykjavík
fyrir 33 árum og lenti á
vakt með honum. Þá hafði hann
verið við störf í 7 ár en hann byrjaði í lögreglunni í Reykjavík 15.
marz 1946. Við vorum saman á
vakt í 13 ár og voru þau samstarfsár lærdómsrík.
Við svo náin kynni og samstarf
koma vel í ljós kostir
manna og gallar. Magnús hafði alla
þá kosti er góður lögreglumaður
þarf að hafa, hann var prúður,
starfsmaður og skilningsríkur og
vann sér virðingu jafnt starfsfélaga
sem borgara.
Er ég varð aðalvarðstjórí á
vakt okkar 1962 valdi ég
Magnús oft til að leysa af varð-
stjóra sem voru í leyfum og fórst
honum það vel úr hendi. Hann var
stjórnsamur en jafnframt réttsýnn
og leysti störf sín farsællega af
hendi. Magnús var skipaður aðstoð-
arvarðstjóri 1.9.1968 og varðstjóri
1.11.1969 og gegndi stöðu aðalvarðstjóra
1974—1976 en í desember 1976 var
hann skipaður aðalvarðstjóri.
Þeirri stöðu gegndi
hann til 12. maí sl. er hann lét af
störfum vegna vanheilsu. Það er
langur og strangur starfsdagur að
hafa gengið óreglulegar vaktir f 40
ár, búið við óreglulegt mataræði
og missvefn í erfiðu starfi.
Magnús var vinsæll og vel virkur
bæði af starfsfélögum og þeim er
hann þurfti að eiga samskipti við
vegna stöðu sinnar. Hann var mjög
traustur starfsmaður sem allra
vanda vildi leysa.
Góður félagi er fallinn fyrir aldur
fram. Ég vil þakka ánægjulegt samstarf
og veit ég mæli fyrir munn
allra starfsfélaga í lögreglunni að
með Magnúsi Gunnarí Magnússyni
hafi traustur hlekkur brostið og
hans verði sárt saknað.
Eiginkonu, börnum og öðrum
ástvinum sendi ég innilegar
samúðarkveðjur.

Bjarki Elíasson
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is