Una Hauksdóttir fæddist í Reykjavík 30. júní 1963. Hún lést á heimili
foreldra sinna hinn 22. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar eru hjónin
Haukur Guðbjartsson, f. 28. september 1930, og Stefanía Eiríka
Kristjánsdóttir, f. 8 apríl 1933. Una var yngst fjögurra systkina, en
hin eru Ásdís, f. 1955, maki Emil Haraldsson, f. 1954, og eiga þau þrjú
börn; Karítas Hrönn, f. 1957, og á hún fjóra syni; og Kristján, f.
1958, maki Björg Guðmundsdóttir, f. 1960, og eiga þau tvær dætur.
Una lætur eftir sig eina dóttur, Sunnevu Ósk Ayari, f. 4. júlí 1984. Unnusti hennar er Óskar Páll Hilmarsson, f. 1982.