Þú ert hér

Fá sendar tilkynningar Loka

Með því að skrá netfang þitt hér getur þú fengið sendar á tölvupósti nýjustu greinar og kveðjur þegar þær eru skráðar á viðkomandi.

Ragnheiður Maríasdóttir

f.d. 11.10.1924 - d.d. 20.12.2007
Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma,,langamma og langalangamma Ragnheiður Maríasdóttir skúlagötu 40 Reykjavík lést á landspítalanum í fossvogi 20 desember síðatliðin.Jarðaförin verður auglýst síðar.
                                             Jóhannes Leifsson
Ingvar Á Jóhannesson
Friðgeir Þ Jóhannesson        Ragna Kjartansdóttir
Sigríður M Jóhannesdóttir            Pétur Hreinsson
Reynir Jóhannesson       Margrét G Kristjánsdóttir
Jökull Jóhannesson
                  Barnabörn, barnabarnabörn og langömmubarn

Kveðjur

Elsku Amma nú ertu farin,vil ég þakka þér öll árin sem við áttum saman.
Þinn dóttursonur
Jóhannes þ Jóhannesson.
Elsku amma mín nú ertu farinn frá okkur, en ljós þitt mun skína áfram í minningu okkar.Takk fyrir allt amma. Þín Dagmar Björg

Minningargreinar

8.1.2008 01:10:23

Lesa grein
Elsku amma nú ertu farin til hinstu hvíldar,það voru frekar daprar fréttir sem bárust fimmtudagsmorguninn 20 desember,en þá hringdi mamma og tilkynnti mér um andlát þitt.Þú varst búin að eiga við langvarandi veikindi að stríða en að gefast upp var ekki til í þinni orðabók,en það lýsti þér mikið að þegar þú varst á reykjalundi fyrir mörgum árum er ég var barn og þegar þú komst heim og varst að æfa þig með hin ýmsu tæki fyrir hendurnar þá sagðir þú einu sinni við mig að gefast upp er orð sem þú þekktir ekki,þessu gleymi ég seint ef ekki aldrei.Það var alltaf mjög notalegt og gaman að koma til þín á Grettisgötuna og þangað var maður alltaf velkominn,ég man þegar þú varst að smyrna teppi og púða og kenndir mér hvernig ætti að gera það,einnig man ég  eftir veggfóðrinu sem var á íbúðinni og hversu glöð þú varst þegar því var skipt út fyrir annað og svo seinna var allt málað.Það var einnig alltaf margt um manninn hjá þér og afa,hvort sem það voru matarboð eða bara heimsóknir enda alltaf tekið á móti fólki eins og það væri kóngaborið. Það eru margar fleiri góðar minningar á Grettisgötunni sem ég gæti nefnt en ég geymi þær í hjarta mínu. En eftir að afi dó fluttist þú nokkru seinna að Skúlagötunni ,það var oft sem þú baðst mig um að astoða þig við hitt og þetta sem var bara skemmtilegt,en mér er þó efst í huga með hann dódí. Dódí var nefnilega köttur með karakter og átti það til að strjúka af heiman,hlutur sem ég gerði æði oft hér í gamla daga og strauk þá alltaf niður á grettó,síðan hringdir þú í mömmu  og lést hana vita að stráksi væri kominn. En ég hafði alltaf gaman að leita að dódí fyrir þig  hvort sem það var að kveldi eða nóttu til,það var alltaf alveg sjálfsagt að skreppa niður á skúló og finna strokuköttinn,en kötturinn sá gaf þér alveg ómælda hamingju og í hvert sinn er ég fann hann varstu svo glöð að orð fá ekki lýst,en svo fékk hann verlaunin sín fyrir að vera kominn aftur og þau voru sko ekki af verri gerðinni/túnfiskur og rækjur takk fyrir,ekki skrýtið þó að það hafi verið prakkari í honum.  
Elsku amma ég þakka þér öll árin sem við áttum saman .
Guð veri með þér og varðveiti þig .  
Þinn dóttursonur,
Jóhannes Þorvaldur.

7.1.2008 17:08:37

Lesa grein
Elsku amma mín. Þú farin ert til hinstu hvíldar. Þú fórst sátt á þinn hátt. Eftir langa dvöl á spítala og mikinn barning við sjúkdómana kvaddir þú þetta líf. Þegar ég hugsa til baka á ég margar góðar minningar; eins og þegar ég, mamma og pabbi komum til ykkar afa á Grettisgötuna, þá var alltaf það fyrsta sem ég heyrði: „Nei, nei er ekki jólabarnið mitt komið,“ alveg sama hvaða árstími var, alltaf sagðir þú þetta við mig og engu skipti hversu gömul ég var orðin. Mjög mikilvægt var að ég fengi uppáhaldsmatinn minn þegar við komum sem var þá saltkjöt með hvítri sósu eða pulsur með kartöflumús, því eitt er víst, það mátti allt hjá ömmu og afa á Grettó, vinna í bókhaldinu hjá afa, finna flott ömmuföt til að fara í, leika sér með hárrúllurnar og krullujárnið þitt. Ég notaði hvert tækifæri þegar ég varð eldri til að kíkja á Grettó, keppnisferðalög eða tannréttingarferðirnar bara til að fá ömmudekur. Þegar ég flutti til Reykjavíkur áttum við fleiri dýrmætar stundir saman. Ég fékk þau forréttindi að búa hjá þér í skamman tíma á Skúlagötunni, þó svo að þú værir orðin fullorðin fannst þér það ekkert mál, það er fínt að fá félagsskapinn sagðir þú bara. Það eina sem þú settir út á var að á morgnana, ef ég vaknaði ekki strax, fannst þér synd að vekja mig af því ég svæfi alltaf svo vært. Yndisleg amma. Við brölluðum margt skemmtilegt og alltaf var gott að tala við þig um allt, því alltaf varstu hreinskilin og sagðir það sem þér fannst. Ég fékk að upplifa með þér gleðina og hamingjuna þegar þú kynntist vini þínum Jóhannesi Leifssyni eða kærastanum þínum eins og mér fannst svo gaman að segja við þig. Einnig að þú hefðir einfaldan smekk og féllir bara fyrir Jóhannesum (því afi hét Jóhannes). Það var nefnilega á þeim tíma þegar ég bjó hjá þér að þið kynntust á Skúlagötunni og þú varðst eins og smástelpa á ný og ég man sérstaklega þegar þú fórst að finna ýmist gamalt dót eins og úrið þitt, bréfahnífinn sem var brotinn og orðinn ljótur, svona sitt lítið af hverju sem Jóhannes gullsmiður gat lagað. Síðan fékkstu þér göngutúr á Laugaveginn þar sem hann var með verslunina til að hitta hann ég mátti alls ekki gera þér þann greiða að sækja þetta fyrir þig því þú hafðir svo gott af hreyfingunni. Þetta fór svo að þróast í meiri heimsóknir frá Skúlagötu 40 til Skúlagötu 40a og öfugt, endaði svo heima hjá þér þegar þið fóruð að búa saman. Jóhannes færði þér mikla gleði, félagsskap og var þér virkilega góður, fyrir það færi ég honum mínar bestu þakkir. Gott var að koma til ykkar og yndislegt að koma með strákana mína til ykkar. Fengu þeir ávallt hlýjar og ömmulegar móttökur, meðal annars þessa setningu: „Nei, nei eru bestustu strákarnir mínir komnir.“ Núna ertu hins vegar komin til hans afa eftir margra ára fjarveru og veit ég að þið munið eiga góðan tíma saman. Ég bið góðan Guð að vaka yfir okkur öllum á þessum erfiða tíma.
 Ég ætla að enda þetta á minni uppáhaldsbæn.

Láttu nú ljósið þitt
 loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
 (Höf. ók.)
Sofðu rótt elsku amma mín.
 Þín Jóhanna Kristín.

7.1.2008 17:05:11

Lesa grein
Elsku amma mín, nú ertu farin frá okkur, í bili að minnsta kosti. Þegar mamma hringdi í mig og sagði mér að þú værir dáin var ég svo hissa, samt bjuggumst við við þessu þar sem þú varst búin að vera veik. Það er samt svo skrítið að þegar að þessu kemur er maður langt í frá tilbúinn þessum fréttum. En elsku amma mín, þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig í blíðu og stríðu eins og ömmur eru en samt held ég að þú hafir verið sérstök í þessu. Þú einhvern vegin varst alltaf með svo góð ráð til mín eins og þegar hann Elvar minn fór út af brautinni sinni og ég kom niðurbrotin til þín á aðfangadagsmorgun 2004 og sagði þér allt saman. Þá sagðir þú við mig: Elsku Dagmar mín, þetta tekur tvö ár og þá verður þetta allt í lagi. Strákurinn þarf bara að rasa út. – Svo þegar við Aron komum til þín þegar hann handleggsbraut sig núna í desember, og við vorum að bíða eftir að komast að á slysó þá rifjuðum við upp þetta samtal og brostum báðar, þú bara vissir þetta. Að koma niður á Grettó til ykkar afa var alltaf svo gaman, maður var alltaf svo velkominn. Afi að gefa okkur tekex og þú að skamma hann fyrir að subba út. Þegar við komum í mat til þín á tyllidögum og þú eldaðir svo ljúffengan kjúkling, annað eins hafði maður ekki bragðað. Öll jólin sem þið afi komuð til okkar í Grindavík var sko fjör hjá okkur, en svo er þetta bara búið einn daginn. Elsku amma mín, mikið sakna ég þín. Það er einhvern veginn svo tómt allt og hugurinn fullur af sorg og minningarnar fljúga áfram. Það var brotið blað í lífi okkar allra þegar þú ákvaðst að flytja á Skúlagötuna, vá, það var skrítið að fara ekki niður á Grettó heldur í nýju íbúðina hennar ömmu en svo vandist það auðvitað. Þú komst þér svo vel fyrir. Spáðir svo mikið í gluggatjöldum og vildir hafa svo huggulegt hjá þér. Svo var alveg frábært að eftir að þú varst flutt og nýtt upphaf hjá þér þarna, þá eignaðist þú svo góðan vin, hann Jóhannes Leifsson. Þetta var svo sniðugt og mikið leyndó hjá ykkur turtildúfunum en hann var kominn til að vera og var þér og okkur öllum svo góður vinur sem hefur staðið við bakið á þér í einu og öllu. Þín Dagmar Þú lifir ávallt í minningunni. Ég veit að þú vilt að við gleðjumst og hlæjum áfram út í lífið og það ætla ég og börnin mín að gera með þig í hjarta okkar. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér.

 Og það er svo margs að minnast,
 svo margt sem um hug minn fer.
 Þó þú sért horfinn úr heimi,
 ég hitti þig ekki um hríð.
 Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
 (Þórunn Sigurðardóttir.)

 Elsku amma, minning þín mun lifa í hjörtum okkar.
 Dagmar. Elvar. Aron og María Guðný.

7.1.2008 17:02:52

Lesa grein
Margs er að minnast þegar ég hugsa um stundirnar sem ég átti með tengdamömmu minni sem jörðuð er í dag. Þegar ég kom fyrst á heimili hennar, þá 16 ára gömul, ætlaði ég ekki að hitta neinn á Grettisgötunni en þegar ég var að læðast út sat hún við eldhúsborðið og brosti, brosi sem ég gleymi aldrei. Um jólin vorum við Reynir hjá tengdaforeldrum mínum og morguninn eftir að ég kom var bankað á dyrnar og þar stóð hún með brúnan kassa sem hún rétti mér og bauð mig velkomna í fjölskylduna. Þegar ég opnaði kassann vall um allt hálmur, og kom í ljós stytta af strák að teikna lest. Þetta var sérstakt fyrir stelpu sem dauðkveið fyrir því að hitta allt þetta nýja fólk en hún braut ísinn. Okkur Ragnheiði hefur alltaf komið vel saman, við spiluðum einu sinni mikið og sagði hún mér frá mörgu sem hafði hent hana í vinnunni. Aldrei lá Ragnheiður á meiningum sínum en gat oft verið hvöss, en samt var hláturinn aldrei langt undan. Þegar ég, Reynir og Jóhanna Kristín komum frá Eyjum í heimsókn á Grettisgötuna var alltaf eldað eitthvað með hvítri sósu eða matur með kartöflumús og helst var búið að láta renna í bað því það var það skemmtilegasta sem Jóhanna gerði þegar hún kom til ömmu. Eftir að Ragnheiður varð sjúklingur kom alls ekki til greina að leggjast inn á sjúkrahús og helst ekki að liggja lengi á sjúkrahúsi, þetta myndi allt lagast mikið betur heima. Árið 2004 þegar hún varð 80 ára fannst henni óþarfi að halda upp á afmælið. En við gerðum það samt með góðra vina hjálp, og buðum fullt af vinum og ættingjum. Eftir á fannst henni þetta mjög skemmtileg stund sem ég og Sigga mágkona mín höfðum haft mikið fyrir. Löngu seinna sagði ég henni að kl. 14.00 sama dag og afmælið var hefðum við Sigga verið að keyra Sæbrautina með fullan bíl af tertum og brauðum sem við vorum að fara með í veisluna, við stöllur sallarólegar og gestirnir rétt ókomnir og allt eftir að gera og við skellihlæjandi, en við létum hendur standa fram úr ermum og allt var tilbúið þegar gestirnir komu. Þá hló hún mikið og sagði við mig: Magga mín, þú kemur aldrei tómhent, á páskum kemurðu með eitthvað gult og á jólum með kökur og rautt, en afmælisveislan tókst vel og var hún fegin eftir á að hafa hitt alla þá sem komu og glöddu hana. Ragnheiður var búin að vera mikið lasin síðan í maí þegar hún lagðist á sjúkrahús. Það hefur verið mikið álag á Siggu dóttur þinni þessa mánuði sem þú varst á sjúkrahúsinu og vil ég þakka henni mikið vel fyrir allt. Góður guð, bið ég þig um að styrkja Reyni minn á þessum erfiða tíma, Siggu, Ingvar, Bóa Jökul og Jóhannes, sem var sambýlismaður hennar undanfarin ár, þau hafa misst mikið. Elsku Ragnheiður, nú ertu búin að hitta Jóhannes þinn sem þú varst búin að vera gift í 50 ár. Takk fyrir allt.
 Far þú í friði, friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
 Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi,
 hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Þín tengdadóttir, Margrét Grímlaug Kristjánsdóttir.

7.1.2008 16:54:47

Lesa grein
Ragnheiður Maríasdóttir fæddist í Kjós í Grunnavíkurhreppi íÍsafjarðarsýslu 11. október 1924. Hún lést á Landspítalanum í Reykjavík 20.desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Marías Þorvaldsson, f.í Kjós í Grunnavíkurhreppi 13. maí 1895, d. 7 ágúst 1956 og SigríðurJónsdóttir, f. á Felli í Fellshreppi í Strandasýslu 26. apríl 1894, d. 20.september 1974. Ragnheiður átti 15 systkini, 10 alsystkini og þrjú sammæðraog tvö samfeðra.Ragnheiður giftist 1. janúar 1945 Jóhannesi Guðjónssyni skipstjóra ogútgerðarmanni, f. í Nýjabæ í Norðfirði 16. febrúar 1914, d. í Reykjavík 15.janúar 1996. Foreldrar hans voru Guðjón Símonarson, Nýjabæ, Þingvöllum, ogkona hans Guðrún Sigurveig Sigurðardóttir, Krossi, Mjóafirði. ÞeimRagnheiði og Jóhannesi varð fimm barna auðið, þau eru Ingvar Ágúst, f.1945, býr í Bandaríkjunum; Friðgeir Þráinn, f. 1947, maki Ragna SigríðurKjartansdóttir, búa í Reykjavík; Sigríður María, f. 1949, maki PéturHreinsson, búa í Reykjavík; Reynir Skarphéðinn, f. 1954, maki MargrétGrímlaug Kristjánsdóttir, búa í Vestmannaeyjum; og Jökull Hafþór, f. 1959,býr í Bretlandi.Sex ára flytur Ragnheiður með fjölskyldu sinni að Faxastöðum í Staðarsókn íNorður Ísafjarðarsýslu og er þar til sautján ára aldurs, en þá flytur húntil Reykjavíkur og byrjar að starfa sem vinnukona. Fljótlega eftir að húnkemur suður kynnist hún Jóhannesi og fella þau hugi saman og gifta sig.Útför Ragnheiðar fer fram frá Langholtskirkju í dag og hefst athöfninklukkan 13.
Mig langar í fáeinum orðum að minnast tengdamóður minnar Ragnheiðar Maríasdóttur, sem lést  20 desember eftir erfið veikindi. Ég kynntist Ragnheiði 1972 þegar við Sigríður María byrjuðum að búa saman. Ragnheiður reyndist mér allatíð vel og ég minnist þess sérstaklega þegar við Sigga ákváðum að flytja til Grindavíkur og vorum að leita að íbúð þar til að kaupa þá vildir þú endilega koma með og skoða það sem í boði var, en við höfðum um þrjár íbúðir að velja. Eftir að þú hafðir skoðað allar íbúðirnar, þá sagðir þú, það er bara ein íbúð sem kemur til greina, og það var ekki sú íbúð sem mér fannst rétt að kaupa vegna þess að mér fannst hún full dýr, en þú sagðir, þetta er ekkert mál þið ráðið alveg við þetta sem reyndist rétt hjá þér og vil ég þakka þér það. Ragnheiður var gift Jóhannesi Guðjónssyni skipstjóra og eiganda Íslendings, en hann lést 15 janúar 1996. Eftir hans fráfall baðstu mig um að hjálpa sér við að finna og kaupa aðra íbúð sem hentaði betur, en þú áttir þá orðið erfitt með að ganga upp stiga. og þá kynntist ég því aftur hvað þú gast verið einbeitt og ákveðin í þínum gerðum, enda tók stuttatíma að skifta um íbúð                                                                                                      Ég gæti skrifað svo margt margt fleira um kynni mín og Ragnheiðar, eins og til dæmis pólitíkina, lífið, og tilveruna, en maður gat rætt við þig um flest öll mál sem viðkomu lífinu því þú hafðir skoðanir á því flest öllu, enda varstu mikil tilfinningavera. Ragnheiður ég vil þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þér og mun ætið minnast þín með gleði. Guð geymi þig og blessi. Þinn tengdasonur Pétur Hreinsson.

Dánartilkynning Lesa grein

Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma,,langamma og langalangamma Ragnheiður Maríasdóttir skúlagötu 40 Reykjavík lést á landspítalanum í fossvogi 20 desember síðatliðin.Jarðaförin verður auglýst síðar.
                                             Jóhannes Leifsson
Ingvar Á Jóhannesson
Friðgeir Þ Jóhannesson        Ragna Kjartansdóttir
Sigríður M Jóhannesdóttir            Pétur Hreinsson
Reynir Jóhannesson       Margrét G Kristjánsdóttir
Jökull Jóhannesson
                  Barnabörn, barnabarnabörn og langömmubarn

Jarðarfaratilkynning Lesa grein

Elskuleg sambýliskona mín,móðir okkar,tengdamóðir,amma langamma,og langalangamma. Ragnheiður Maríasdóttir Skúlagötu 40, Reykjavík sem lést á Landspítalanum í Fossvogi,Fimmtudaginn 20 desember, verður jarðsungin í Langholtskirkju mánudaginn 7 janúar kl.13:00
Jóhannes Leifsson,  Ingvar Á Jóhannesson, Friðgeir Þ Jóhannesson, Ragna Kjartansdóttir, Sigríður M Jóhannesdóttir, Pétur Hreinsson,  Reynir S Jóhannesson, Margrét G Kristjánsdóttir,  Jökull H Jóhannesson,  og barnabörn, barnabarnabörn, og langalangömmubarn.
 
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is