Þú ert hér

Fá sendar tilkynningar Loka

Með því að skrá netfang þitt hér getur þú fengið sendar á tölvupósti nýjustu greinar og kveðjur þegar þær eru skráðar á viðkomandi.

Rafn Einarsson

f.d. 11.1.1956 - d.d. 5.11.2007
Rafn Einarsson lést í vinnuslysi í Svíðþjóð 5. nóv 2007
Hann var jarðsettur í Leksand 16. nóv 2007
Minngarathöfn fór fram í Grensáskirkju 5. des 2007

Kveðjur

Elsku bróðir söknuðurinn hverfur seint það er skrítið að hafa þig ekki hér að stríða og hrekkja sakna þín
Þín systir Fríða
Elsku Rabbi minn ég sakna þín óendalega mikið,lífið er svo tómt án þín.Ég mun altaf elska þig,alla tíð,hér og þar.Þín ella love you
Elsku Rabbi ég sakna þín svo sárt lífið er svo tómt án þin.þú munt ávalt búa í hjarta mínu elska þig alla tíð þín ella
Elsku Rabbi þín er voða saknað þú varst góður frændi og alltaf hress og fyndinn og þú varst svo mikill ís kall kveðjur Berglind ,fjöl
elsku rabbi alltaf elska ég þig og sakna þín ennþá meira. ég sakna þess að fá ekki faðmlag og koss á kinn.
Elsku Rabbi minn afmælis dagur þinn í dag sakna þín svo sárt elska þig alla tíð þín Ella
Elsku Rabbi frændi þú ert bestur og verður alltaf bestur í huga mínum kv Berglind og börn
Elsku Rabbi minn Jólin eru að koma ég sakkna þín sárt. þú munt altaf búa í hjarta mínu,ég mun elska þig alla tíð hvíl í friði.
Elsku Rabbi minn nú eru líðin 2 ár síðan þú fórst.Og ég sakkna þín svo sárt. við vorum sálufélagar,Og ég mun altaf elska þig ella
Elsku Rabbi okkar þín er sárt saknað og guð megi vera með þér en mér þyggir voða vænt um þig elsku Rabbi minn
Elsku besti frændi þú munt altaf vera í minningum mínum þú varst altaf svo góður við mig og börnin mín þín er sárt saknað KvSigurlín
elsku rabbi mikið sakna ég þín. mér finnst ennþá sárt að hugsa til þess að fá ekki faðmlag og koss á kinn. þím systir dædæ
Elsku Rabbi frændi,ég hugsa til þín og núna er mamma komin til þín, þú hugsar vel um hana veit ég, ég sakna ykkar beggja mikið.
Elsku Rabbi enn sakna ég þín sárt það er rúmt ár síðan þú lést og stutt síðan afmælisdagurinn var
þín systir Fríða
Elsku Rabbi bróðir sakna þín enn sárt

Minningargreinar

18.1.2009 14:01:29

Lesa grein
Elsku Rabbi minn
Ég sakna þín voða mikið og við áttum góðar stundir saman bæði hér á Íslandi og úti í Norge. Ég man að Þegar þú og Ella og Við Fjölskyldan í Vesturbergi fórum á ströndina saman Grilla og njóta sólarrinnar og minnist alltaf góðu stundir með hvað þú varst alltaf góður frændi við mig og börnin min. Og góðu dagana þegar við buðum alltaf hvort öðru í mat og í kaffisopa og kökur og í ís og það elskaðir þú að borða ís ég veit bara það að það er allt gott um þig að segja og það er voða sárt að þú sért farin frá okkur Rabbi okkar HVÍLDU Í FRIÐI Rabbi minn sakna þín mikið þín frænka
Berglind H

31.12.2007 21:24:22

Lesa grein
Rafn Einarsson ( Rabbi) -  MINNING
Hann Rabbi, litli bróðir minn er dáinn -  ótrúlegt.   Ég var stödd á flugvelli í London þegar ég  fékk símhringingu frá Ellu sambýliskonu hans um að hann væri dáinn, en ég skellti á hana símanum - svona fréttir vill enginn heyra. En þegar loks ég hringdi til baka, fékk ég þær fréttir að hann hefði fengið þungt höfuðhögg í vinnunni og dáið samstundis en á þeirri stundu vissi enginn hvað hafði í raun gerst. Það var erfitt að halda ferðalaginu áfram eftir þessar fréttir.   Mamma eignaðist  7 stelpur og svo Rabba seinast. Loksins kom strákur. Hann fæddist heyrnadaufur og þurfti að nota heyrnatæki báðum megin. Margar góðar og skemmtilegar minningar á ég um stríðnina og prakkaraskapinn í honum Pabbi var alltaf á sjónum þannig að mamma var ein með okkur krakkana heima og þegar hún þurfti að skammast í honum eða við systurnar, þá slökkti hann bara á heyrnatækinu svo hann þyrfti ekki að hlusta á þetta nöldur í okkur en við vissum þetta ekki fyrr en seinna þegar að hann sagði okkur sjálfur frá því. Hann bjó um tíma hjá mér í Hveragerði, og þegar við vorum að tala saman um eitthvað þurfti ég oft að gæta mín á honum því ég vissi aldrei hvort hann var að stríða mér eða ekki. Þegar pabbi dó ákváðum við systkinin að taka til baka það sem við höfðum gefið honum. Ég fékk veggklukku sem þurfti að trekkja upp með þar til gerðum lykli og ég tók til baka mynd sem tengdapabbi minn hafði málað fyrir mig til að gefa pabba í afmælisgjöf. Þetta var mynd af togaranum Jóni Þorlákssyni, skipi sem pabbi var lengi á og Rabbi var reyndar á líka á þessu skipi um hríð.  Rabba langaði í myndina en ég vildi ekki láta hann hafa hana en gaf honum myndina svo seinna í afmælisgjöf, en af því að hann fékk ekki myndina tók hann lykilinn af klukkunni svo ég gæti ekki trekkt hana upp.  Þetta sagði Ella mér eftir að hann dó Alltaf var Rabbi tilbúinn að hjálpa öllum, og var hann virkur í samfélagi heyrnalausra var meðal stofnenda íþrótta og sportklúbbs heyrnalausa, spilaði handbolta með félaginu en neyddist til að hætta því snemma vegna meiðsla í hnjám.   Orðatiltæki áttum við saman og það var ef eitthvað var að, meiðsli eða eitthvað annað :  það er ekkert að þér - þú ert ekki brotinn.   En nú, elsku bróðir, ert þú farinn og ég er brotin.   Guð geymi þig, þín systir, Fríða

Dánartilkynning Lesa grein

Rafn Einarsson lést í vinnuslysi í Svíðþjóð 5. nóv 2007
Hann var jarðsettur í Leksand 16. nóv 2007
Minngarathöfn fór fram í Grensáskirkju 5. des 2007
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is