Þú ert hér

Fá sendar tilkynningar Loka

Með því að skrá netfang þitt hér getur þú fengið sendar á tölvupósti nýjustu greinar og kveðjur þegar þær eru skráðar á viðkomandi.

Júlíana Kristín Pálsdóttir

f.d. 30.5.1942 - d.d. 30.12.2007
Júlíana Kristín Pálsdóttir fæddist í Bolungarvík 30. maí árið 1942. Hún andaðist að heimili sínu 30. desember síðastliðinn. Foreldar hennar voru Páll Borgarsson, f. 16. febrúar 1887, d. 17. febrúar 1969 og Sigrún Sigurðardóttir, f. 26. desember 1906, d. 22. apríl 1990. Systkyni hennar eru Kristinn, Guðný Elínborg og Sigurða. 29. maí 1965 giftist Júlíana Gunnari Ragnari Jónssyni frá Þingeyri, f. 16. ágúst 1930, d. 23. desember 1997. Þau áttu heimili á Þingeyri og í Hafnarfirði frá 1989.

Börn hennar eru:
1) Páll Brynjólfsson, f. 8. júní 1960, faðir hans er Brynjólfur Kristinsson. Páll er kvæntur Margaret Brynjólfsson. Þau búa í Lundúnum og eiga tvö börn; Matthew Brynjólfsson, f. 1982, búsettur í Ástralíu ásamt unnustu sinni Stephanie Casbolt, f. 1985, og Kristy Júlíana Brynjólfsson, f. 1988, en hún á dótturina Chloe Júlíönu Doyle, f. 2006.
2) Gunnar Sigfússon, f. 14. október 1962, faðir hans er Sigfús Þór Guðmundsson. Gunnar er kvæntur Ingu Láru Karlsdóttur. Þau búa í Grafarvogi. Gunnar var áður í sambúð með Rannveigu Björgu Jónsdóttur og á með henni tvö börn; Guðmund Þór, f. 1993 og Ester Maríu, f. 1994.

Júlíana og Gunnar áttu:
 3) Jón Gunnarsson, f. 28. febrúar 1966. Hann býr á Reyðarfirði. Hann var kvæntur Þórstínu Hlín Sigurjónsdóttur og eiga þau fjóra syni; Gunnar Ragnar Jónsson, f. 1985, Sindra Frey Jónsson, f. 1990, Sigurð Óla Jónsson, f. 1992 og Alexander Inga Jónsson, f. 1993.
4) Borgar Gunnarsson, f. 9. desember 1968. Hann býr í Hafnarfirði.
5) Sóley Gunnarsdóttir, 19. maí 1970. Hún er í sambúð með Jóni Briem Steindórssyni. Þau búa í Reykjavík og eiga tvö börn; Steindór Briem, f. 2003 og Kristínu Rögnu Briem, f. 2006.

Júlíana starfaði á spítalanum í Bolungarvík og á Þingeyri. Á Þingeyri starfaði hún þó lengst af við fiskvinnslu. Í Hafnarfirði starfaði hún við matvælaiðnað en lengst af við heimilishjálp hjá Hafnarfjarðarbæ.

Minningargreinar

7.1.2008 13:19:18

Lesa grein
Mig langaði að minnast systur minnar sem kvaddi okkur eftir stutt en erfið veikindi.

Júlla var næstyngst af okkur systkinunum. Júlla var hugljúf og góð manneskja - brosmild og ávallt jákvæð. Það eru a.m.k. þau lýsingarorð sem koma upp í huga minn þegar ég hugsa um Júllu.  

Eins og við hinar systurnar varð hún ung móðir og fór snemma að vinna fyrir sér. Fór meðal annars til Þingeyrar til að vinna á sjúkraskýlinu þar sem hún kynntist Gunnari eiginmanni sínum en nákvæmlega 10 ár eru liðin frá því að hann féll frá. Júlla fór í gegnum lífið brosandi og tókst alltaf að einbeita sér að björtu hliðunum.  

Ég trúi því að hún sé komin á góðan stað. Ég veit að hún er búin að hitta Gunnar sinn sem og mömmu og pabba og án efa hefur verið tekið vel á móti henni.  

Guð geymi þig mín kæra systir.  

Guðný

Dánartilkynning Lesa grein

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Júlíana Kristín Pálsdóttir lést sunnudaginn 30. desember. Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 8. janúar kl. 13:00.  Sr. Gunnþór Ingason jarðsyngur

Páll Brynjólfsson, Margaret Brynjólfsson,
Gunnar Sigfússon, Inga Lára Karlsdóttir
Jón Gunnarsson
Borgar Gunnarsson
Sóley Gunnarsdóttir, Jón Briem Steindórsson

Barnabörn og langömmubarn
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is