Þú ert hér

Fá sendar tilkynningar Loka

Með því að skrá netfang þitt hér getur þú fengið sendar á tölvupósti nýjustu greinar og kveðjur þegar þær eru skráðar á viðkomandi.

Erlendur Lárusson

f.d. 1.7.1934 - d.d. 3.10.2005
Elskulegur maki minn Erlendur Lárusson lést að heimili okkar 
mánudaginn 3.október 2005, eftir aðeins 6 mánaða baráttu við krabbamein sem bar brátt að og atti harða, óvægna baráttu í okkar lífi.
Ég vil minnast hans hér með söknuði og virðingu sem við bæði einsettum okkur í lífinu að hafa að eiga að leiðarljósi í hjónabandi okkar, virðing, vinátta og væntumþykja voru aðaleinkunnarorð okkar.
Ég sakna hans afar sárt einstaklega þessa dagana þegar hátíð ljós og friðar er rétt afstaðin og nýtt ár er gengið í garð. Það eru stundirnar sem mikið reyna á tilfinningalífið.
Elskulegur Erlendur minn, þakklæti mitt og kærleikur eru mín einkunnarorð í minningu þinni. Þakka þér fyrir allar okkar ljúfu, fallegu, átakalausu stundir þau ár sem við áttum saman elsku vinur minn.
Minning þín er hvatning mín um að lífið sé dýrmætara en allt annað.
Þakka þér hjartablóm fyrir að vera þú og lofa mér að deila tilverunni í návist þinni.
Sofðu vel elsku vinur minn
Þín elskandi Anna

Dánartilkynning Lesa grein

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is