Sesselja Kristjana Guðbjartsdóttir
f.d. 31.5.1935 - d.d. 16.5.2008
Sesselja Kristjana Guðbjartsdóttir fæddist í Efrihúsum Önundafirði 31 maí 1935. Hún lést á Landspítalanum við hringbraut 16 maí síðastliðinn.Foreldrar hennar voru Petrína F Ásgeirsdóttir, f. 6 júní 1904, d. 16, ágúst 1992 og Guðbjartur S Guðjónsson, f. 2 febrúar 1904, d. 10 febrúar 1992. Systkini Sesselju eru Ásgerður J, f. 11 maí 1929, Sigríður H, f. 19 maí 1931, Guðrún M, f. 13 júní 1932, Helga E, f. 14 september 1933, Laufey, f. 5 ágúst 1936, Guðjón S,f. 26 október 1937, Elísabet S, f.18 júlí 1939, Konráð E, f. 7 október 1940,d. 17 mars 2004, Þorsteinn, f. 28 mars 1942, Árni H, f. 21 nóvember 1945, Einar, f. 28 nóvember 1949.Sesselja giftist 31 desember 1957 Hreini Ófeigssyni f. 10 maí 1934 og eignuðust þau sex börn, 1) Pétur, f. 27 febrúar 1954 kvæntur Sigríði Maríu Jóhannesdóttur, þau eiga 5 börn.2) Elínborg, f. 19 mars 1956, maki Magnús Jónsson, þau eiga fjögur börn.3) Hreinn Sesar, f. 18 september 1958, kvæntur Láru Aðalsteinsdóttur,þau eiga tvær dætur.4) Elfa Björt, f. 16 september 1962,gift Emil Gústafssyni, þau eiga fjögur börn. 5)Gunnhildur,f. 21 október 1963, gift Bjarna Benediktssyni, þau eiga þrjá syni.6) Ófeigur, f. 4 apríl 1972, kvæntur Lilju Dögg Gylfadóttur , þau eiga þrjá syni. Sesselja vann ýmisleg störf á sínu æviskeiði eins og við fiskvinnslu, í Hampiðjunni og Múlakaffi, Borgarspítalanum, og sem matselja í leikskólanum Vinaminni breiðholti. Útför Sesselju hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk.