Þú ert hér

Fá sendar tilkynningar Loka

Með því að skrá netfang þitt hér getur þú fengið sendar á tölvupósti nýjustu greinar og kveðjur þegar þær eru skráðar á viðkomandi.

Hjálmar Jón Hjálmarsson

f.d. 28.3.1925 - d.d. 9.6.2008
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Hjálmar Jón Hjálmarsson
 Háteigi Húsavík
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga mánudaginn 9. júní. 
Útför hans fer fram frá Húsavíkurkirkju mánudaginn 16. júní kl. 14.00.
Sólveig Pétursdóttir
 börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

Minningargreinar

16.6.2008 12:08:11

Lesa grein

Elsku afi.

Okkur systrum langar til að kveðja þig með því að fara yfir hvers við minnumst þín fyrir og hvernig við munum þig.

Við munum þig

Í löggubúningnum.

Með hlýjar mjúkar hendur.

Með bros á vör.

Hlæjandi

Með pípuna.

Keyrandi suður saman í Lödunni.

Sem sögumanni.

Í blárri skyrtu og vesti.

Segjandi tertubrandara.

Bjóðandi í nefið.

Með tóbaksklútinn.

Hlustandi á Andrewsystur.

Sem skáldi.

Með stórt hjarta.

Sýnandi okkur myndir í Kinnafjöllunum.

Í ullarsokkum.

Hjálpandi fólki

Haldandi í höndina á ömmu.

Þakklátum fyrir snjómokstur.

Sjáandi meira en aðrir.

Kveðjandi ömmu með kossum.

Minning þín er ljós í lífi okkar.Elsku amma, guð styrki þig.

Kveðja

Barbara og Anna María Hjálmarsdætur.

16.6.2008 09:59:40

Lesa grein
Þegar  tengdapabbi hefur lagt upp í sitt síðasta ferðalag einsamall stendur maður ansi vængbrotinn eftir. það sem stendur þó eftir hjá okkur hjónum eru ótal góðar og skemmtilegar minningar um önnur ferðalög sem við fórum  í saman.  Nestisferðirnar í Ásbyrgi, Mývatnsveit og Laxárdalinn  með smurt í boxi og gos í gleri “ein á mann” raðaðar niður í litlu ferðatöskuna þessa hörðu brúnu sem eru fáséðir dýrgripir í dag. Gefjunarteppin til að sitja á þegar á fyrirhugaðan áfangastað var komið. Þær voru ófáar slíkar ferðirnar sem farnar voru, ásamt stórfjölskyldunni á fyrstu árum mínum í þessari fjölskyldu. Ekki skal gleyma Þeystareikjaferðinni frægu þar sem gengið var á undan bílnum og tínt stærsta grjótið úr vegslóðanum, svo púströrið yrði ekki eftir eða alveg afturhlutinn á  bílnum sem var vel lestaður fólki. Með einhverra ára millibili voru teknar lengri ferðir, þá gjarnan í heimsókn til Imbu systir hans að Öxl í Húnavatnssýslu. Græni Skódinn hans tengdapabba hvað þá Tánusinn, höfðu þá góðu eiginleika nefnilega að laga sig að fjölda farþega hverju sinni. En í þá daga þurfti maður ekki alltaf að vera hræddur um að löggan stoppaði mann til að tékka á bílbeltum eða farþegafjölda.   Þessa  sama eiginleika náðu  Hjálmar og Solla að gæða heimili sitt að Háteigi, þar var nefnilega líka, alltaf nóg pláss fyrir alla sem þar komu á þetta mannmarga og gestrisna heimili. Þessar ferðir okkar saman lengdust síðar meir eftir að fækka tók í húsi þeirra hjóna og Hjálmar hættur að vinna vegna heilsu sinnar. Tóku nú við sumarbústaðaferðir alveg í nokkra daga, vítt og breitt um landið, allar þessar ferðir voru okkur hjónum mjög ánægjulegar og eftirminnilegar.   Hjálmar var einstaklega laginn að taka menn tali og hafði gjarnan sitt lag á því að ná til manna með því að bjóða í nefið. Hjálmar var mikill sögumaður og sagði ófár sögurnar í þessum ferðum okkar, sögur af atburðum sem átt höfðu sér stað  ýmist sem hann hafði verið þátttakandi í sjálfur eða fyrrum samferðarfólk hans. Sögur sem rifjuðust upp eftir því hvar hann var staddur á landinu hverju sinni. Ferðin að Klúku í Bjarnarfirði og um strandirnar stóð þó alltaf uppúr ásamt sögunni af forföður sínum sem hann sagði að hefði hlaupið í einum sprett upp á Kaldbakshornið, fram á þverhnípta brúnina, snúið sér við tekið niður um sig og plaffað framaf. Ég man ég horfði til skiptis á fjallið og sögumann og vissi ekki hvort mér þótti meira til um afrek ættföður hans eða að fylgjast með svipnum á honum meðan ég var að melta afrekssögu þessa. Mér fannst það því dálítið táknrænt en umhugsunarvert að ég skyldi fá andlátsfregn hans er ég var stödd í sumarbústað í Borgarfirðinum.   Þegar við tengdapabbi hittumst á ný fyrir handann, trúi ég því að það verði teknar aftur upp sameiginlegar ferðir um fyrirheitna landið góða,  þar sem verður tekið á móti okkur með nýjum sögum frá þessu ókannaða landi okkar hinna. Með þá hugsun og von kveðjum við hjónin, föður og tengdaföður Hjálmar Hjálmarsson með innilegu þakklæti fyrir allar góðar stundir samann. Blessuð sé minning hans.                                                                        Bogga og Hjalli

Dánartilkynning Lesa grein

Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Hjálmar Jón Hjálmarsson
 Háteigi Húsavík
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga mánudaginn 9. júní. 
Útför hans fer fram frá Húsavíkurkirkju mánudaginn 16. júní kl. 14.00.
Sólveig Pétursdóttir
 börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is