Þú ert hér

Fá sendar tilkynningar Loka

Með því að skrá netfang þitt hér getur þú fengið sendar á tölvupósti nýjustu greinar og kveðjur þegar þær eru skráðar á viðkomandi.

Páll Jóhann Einarsson

f.d. 22.1.1937 - d.d. 2.8.2008
Æviágrip  Páls  Jóhanns  Einarssonar Formáli að minningargreinum í MBL    

Páll Jóhann Einarsson fæddist í Vestmannaeyjum 22. janúar 1937, sonur hjónanna Margrétar Kristínar Pétursdóttur húsmóður f. 29. 12. 1914, d. 7. 9. 2001 og Einars Guttormssonar sjúkrahúslæknis f. 15.12.1901, d. 12. 2. 1985. Páll var elstur eftirlifandi systkina, þeirra Guttorms Péturs fv. skrifstofustjóra f. 15. 3. 1938, Péturs leikara f. 31. 10. 1940, Sólveigar Fríðu ljósmóður f. 21. 8. 1945 og dr. Sigfúsar lífefnafræðings f. 11. 8. 1951. Börn Páls utan hjónabands eru Birgir Davídsen Pálsson f. 1958, Páll Ástþór f. 1959, Stefán Norman Mink f. 1969. Eftir skólaskyldu lauk Páll námi við vélskólann í Vestmannaeyjum og í Verslunarskóla Íslands. Hann hóf störf hjá Navy Exchange í Keflavík og  heildverslun Ásbjörns Ólafssonar hf. og hlaut lofsverð ummæli fyrir skeleggt og skapandi sölustörf. Páll lauk flugnámi hér og í Bandaríkjunum og starfaði hartnær 30 ár sem atvinnuflugmaður með bækistöðvar víða um heim og hjá mörgum flugfélögum, m.a. hjá Saudi Airlines og Lufthansa,  en lengst af hjá Cargolux þar sem hann hætti störfum sökum vaxandi heilsubrests af beinþynningu og slæmri lyfjameðferð. Um 1970 kvæntist Páll Karen Pachali Baseman f. 4. 3. 1941. Þau byggðu glæsilegt hús í Luxembourg, en héldu einnig heimili í Frankfurt. Börn þeirra eru Kristín f. 26. 9. 1975 og Carolin f. 7. 5. 1980. Auk þess gekk hann syni Karenar, Mark, í föðurstað.  Þau skildu. Er flugstörfum lauk 1984 settist Páll að í Reykjavík. Eftir markvisst áunninn heilsubata hóf hann störf sem leiðbeinandi, einkum á vegum AA samtakanna og náði víðkunnum árangri.  Hann stundaði samanburðar rannsóknir á kenningum kjarneðlisvísinda, á upphafi tilverunnar og mikla hvells, í bland við trúarvitund og starfsferla mannsheilans. Flutti hann marga fyrirlestra m.a. hjá Guðspekifélagi Íslands og stofnaði bókaútgáfuna P.E.A.C.E. publication ehf.  sem gaf út mörg fræðsluerindi og bækurnar : “ Engil afkimans “ sem fjallar um áfengissýkina, og vísindaritið “ The little Scroll “ sem er nú að koma út öðru sinni í endurbættri útgáfu. Auk þess vann hann að frásögn um flugferðir þjóðverja yfir Ísland í síðari heimsstyrjöld. Snemma árs 2007 greindist Páll með krabbamein sem þrátt fyrir vaska baráttu leiddi hann til dauða þann 2. ágúst sl. Útför Páls verður frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 12. ágúst og hefst athöfnin kl. 15:00.  Vinir og vandamenn taka höndum saman og halda erfidrykkju honum til heiðurs eftir athöfnina í Oddfellowhúsinu í Vonarstræti.      

Kveðjur

Ég kveð þig minn væri,með hjartans þökk fyrir það sem þú gafst mér á göngu minni. Hvíldu í friði vinur.
Kveðja
Siggi Guðfinns
asdfasdf

Dánartilkynning Lesa grein

Elskulegur faðir okkar og bróðir
Páll Jóhann Einarsson
flugmaður

andaðist aðfaranótt laugardagsins 2. ágúst sl. á líknardeild Landakots.
Útför hans verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 12. ágúst n.k. kl. 15:00.    Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á PEACE útáfuna s: 893 3361. Kt. 2001373419. Banki:  0513  26  077770.

Carolin Einarsson Pálsdóttir    Kristín Einarsson Pálsdóttir
Birgir Davidsen Pálsson
Páll Ástþór Jónsson Pálsson
Stefán (Norman) Mink Pálsson
Systkini og afkomendur.
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is